6.-10. bekkur – Fjölskylduráð

Stafrænt fótspor og auðkenni
Hjálpið börnum að skrifa texta, athugasemdir og birta myndir á ábyrgan hátt.
Þegar börn og unglingar byrja að deila efni og eiga samskipti á netinu, er mikilvægt að þau geri sér grein fyrir þeim sporum sem þau skilja eftir á netinu og hvaða áhrif þau gætu haft. Foreldrar geta aðstoðað börnin við að skapa fótspor sem þau geta verið stolt af.
Skoðum þessi fjögur ráð

Vertu fyrirmynd
Áður en þú birtir mynd af barninu þínu eða unglingnum á samfélagsmiðlum, þá skaltu spyrja hvort það sé í lagi að deila myndinni. Þannig gerir þú þau ekki aðeins ábyrg um eigin stafræn fótspor, heldur sýnir þú þeim hvað þú vilt að þau geri við myndir annarra.

Notið friðhelgisstillingar
Sestu niður með barninu eða unglingnum og sýndu þeim hvaða friðhelgisstillingar þú notar í þínum öppum og tækjum. Ræddu um hvers vegna þú heldur ákveðnum upplýsingum persónulegum eða deilir aðeins með nánum hóp. Spurðu þau hvaða upplýsingum þau myndu vilja deila og hvers vegna.

Skoðið hvað fræga fólkið gerir
Skrunaðu í gegnum TikTok eða Instragram síður fræga fólksins, listafólks eða stjórnmálafólks. Ræðið myndir og færslur sem það fólk sýnir. Spurðu barnið þitt hvaða tegund myndar það vill gera og hvað það heldur að geri myndina betri eða verri, eins og fyndnar sögur, skrýtnir netbrandarar (mím) eða tilfinningarík myndbönd.

Leitið að ykkur sjálfum
Skiptist á að fletta upp þínu nafni og nafni barnsins í leitarvél og á samfélagsmiðlum. Ræðið niðurstöðurnar. Eruð þið sátt við hvaða upplýsingar og myndir eru aðgengilegar ókunnugum? Er einhver sem þið vilduð ekki að sæi þessar niðurstöður?
